Enski boltinn

Barry verður áfram hjá Villa

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gareth Barry, leikmaður Aston Villa.
Gareth Barry, leikmaður Aston Villa. Nordic Photos / Getty Images

Gareth Barry verður um kyrrt hjá Aston Villa þó svo að hann hafi þrálátlega verið orðaður við Liverpool nú í sumar og síðar Arsenal.

Liverpool bauð nokkrum sinnum í Barry en Aston Villa hafnaði boðunum. Félagið vill fá átján milljónir punda fyrir kappann.

Alex Black, umboðsmaður Barry, staðfesti þetta í yfirlýsingu sem birtist í dag.

Barry gagnrýndi Martin O'Neill, stjóra Aston Villa, í vor og var refsað fyrir það en hann spilaði svo í leik Aston Villa og FH á Laugardalsvellinum fyrir tveimur vikum síðan. Hann verður væntanlega í eldlínunni er félagið tekur á móti FH annað kvöld í Birmingham.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×