Erlent

Breskir bankar eiga í erfiðleikum með endurfjármögnun

Breskir bankar, ekki síður en íslenskir, eiga í erfiðleikum með að endurfjármagna sig. Torsótt er fyrir vikið að fá húsnæðislán í Bretlandi. Gordon Brown, forsætisráðherra, hefur boðað stjórnendur stærstu bankanna á neyðarfund eftir helgi.

Helsta dagskrármálið á fundinum verður versnandi ástand á fasteignamarkaði í Bretlandi. Hús seljast ekki. Erfitt er að fá lán. Þeir sem ætla að kaupa fyrstu fasteign halda að sér höndum - bíða eftir að verðið lækki enn meira.

Brown hvatti í dag breska banka til að lækka vexti sína í samræmi við vaxtalækkanir Bretlandsbanka síðasta árið og skila því þannig áfram til viðskiptavina sinna. Einnig hvatti hann breska banka - sem og banka annarra landa - til að taka sig saman greina ítarlega frá tapi sínu vegna undirmálslána á húsnæðismarkaði í Bandaríkjunum. Þannig verði betur hægt að greina umfang vandans - sér í lagi fyrir hvert land fyrir sig.

Brown verður að mati sérfræðinga að spíta í lófana ætli hann ekki að láta lausafjárkreppuna draga sig og stjórn sína niður enn frekar í könnunum en orðið er. Persónulegar vinsældir forsætisráðherrans hafa minnkað hraðar er hjá nokkrum öðrum breskum forsætisráðherra frá því mælingarhófust á fjórða áratug síðustu aldar. Frá því í águst í fyrra hefur stuðningur við hann farið úr 48 stigum í mínus 37 stig samkvæmt sérstökum skala sem mælir mætur á forsætisráðherra.

Flokkur leiðtogans fær líka slæma útreið í nýrri könnun breska blaðsins Sunday Times. Þar njóta Íhaldsmenn 44 prósenta fylgis en Verkamannaflokkur Browns 28 prósenta stuðnings. Frjálslyndir demókratar fá 17 prósent.

Talið er að staðan á lána- og húsnæðismarkaði ráði mestu um fylgistapið hjá ráðherra sem talin var með föst tök á efnahagsmálum í tíu ár sem fjármálaráðherra. Nú hefur sú ímynd beðið hnekki og því metið mikilvægt að boða til fundarins með bankastjórunum í vikunni og byrjað að endurheimta traustið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×