Mikilvægur sigur hjá Reggina Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. maí 2008 16:33 Kaka og Filippo Inzaghi skoruðu mörk Milan í dag. Nordic Photos / AFP
Reggina lyfti sér úr fallsvæði ítölsku úrvalsdeildarinnar með 2-1 sigri á Catania sem á einnig í mikilli fallbaráttu. Þá vann AC Milan 2-1 sigur á Inter í borgarslagnum í Mílanó. Emil Hallfreðsson var á varamannabekk Reggina en kom ekki við sögu í leiknum. Eftir sigurinn er Reggina í sextánda sæti deildarinnar og því fimmta neðsta með 36 stig en þrjú lið falla úr deildinni. Tvær umferðir eru enn óleiknar. Catania er nú í sautjánda sæti deildarinnar með 35 stig, einu á undan Parma og tveimur á undan Empoli sem eru í fallsætum. Livorno er í neðsta sæti með 30 stig en á enn fræðilegan möguleika á að bjarga sér frá falli. AC Milan færði Rómverjum smá von um ítalska meistaratitilinn þar sem liðið vann 2-1 sigur á toppliði Inter í dag. Filippo Inzaghi og Kaka komu Milan í 2-0 en Julio Ricardo Cruz minnkaði metin fyrir inter þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka. Inter er nú með þriggja stiga forystu á Roma sem vann 3-0 útisigur á Sampdoria í dag. Christian Panucci, David Pizzarro og Cicinho skoruðu mörk Roma. Juventus er í þriðja sæti með 70 stig, ellefu stigum á eftir Iner. AC Milan er í fjórða sæti með 61 stig en sigurinn í dag var gríðarlega mikilvægur því liðið á í hraðri baráttu við Fiorentina um fjórða sæti deildarinnar og þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu. Fiorentina tapaði fyrir Cagliari á útivelli í dag, 2-1, og er liðið nú einu stigi á eftir AC Milan. Inter dugir væntanlega sigur gegn annað hvort Siena eða Parma í síðustu tveimur leikjum sínum þar sem liðið er með hagstæðara markahlutfall en Roma. Roma á eftir að mæta Atalanta á heimavelli og Catania á útivelli.Önnur úrslit í dag: Atalanta - Livorno 3-2 Empoli - Udinese 0-1 Lazio - Palermo 1-2 Parma - Genoa 1-0 Siena - Juventus 1-0 Torino - Napoli 2-1
Ítalski boltinn Mest lesið „Getum gengið stoltar frá borði“ Handbolti Aron og Bjarki Már gerðu sitt í París Handbolti Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Enski boltinn Uppgjörið: Grótta - Haukar 21-31 | Haukar munu etja keppi við Fram í úrslitum Handbolti Magnaður Sigvaldi sökkti Magdeburg Handbolti Hinn reynslumikli Stafford eftirsóttur Sport „Settum í sjötta gír í seinni hálfleik“ Handbolti Bologna kom til baka gegn AC Milan Fótbolti „Viðurkenni að maður fékk fiðring í magann” Handbolti „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Bologna kom til baka gegn AC Milan Echeverri má loks spila fyrir Man City Valdi Laudrup besta fótboltamann sögunnar Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Vilja banna fullorðnum leikmönnum að nota barnalegghlífar Tekinn af velli eftir að hann fékk morðhótanir úr stúkunni Sektin hans Messi er leyndarmál Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Elísabet byrjar á tveimur töpum Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Atli Sigurjóns framlengir við KR Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Tannvesen á Mbappé sem spilar ekki í kvöld Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Sjá meira