Enski boltinn

Man City tapaði heima fyrir Midtjylland

Elvar Geir Magnússon skrifar
Martin Petrov gengur niðurlútur af velli.
Martin Petrov gengur niðurlútur af velli.

Óvæntustu úrslit kvöldsins í UEFA bikarnum voru án vafa tap Manchester City á heimavelli gegn danska liðinu Midtjylland 0-1. Danska liðið tók forystuna eftir fimmtán mínútna leik eftir mistök Richard Dunne.

Forystuna létu Danirnir ekki af hendi. Eftir hræðilega byrjun skánaði leikur City eftir því sem á leikinn leið en liðinu gekk illa að skapa sér færi. Næst komust þeir að skora þegar Martin Petrov skaut í tréverkið úr aukaspyrnu í seinni hálfleik.

Magnaður sigur Midtjylland sem á seinni leikinn á heimavelli eftir tvær vikur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×