Enski boltinn

Muntari til Inter

NordicPhotos/GettyImages

Miðjumaðurinn Sulley Muntari hjá Portsmouth gekk í dag í raðir Inter Milan á Ítalíu og hefur undirritað fjögurra ára samning við ítölsku meistarana. Talið er að félagaskipti þessi bindi enda á áhuga Inter á Frank Lampard hjá Chelsea.

Muntari átti fína leiktíð hjá Portsmouth í fyrra eftir að hafa verið keyptur frá Udinese á Ítalíu fyrir um 7 milljónir punda, en talið er líklegt að enska félagið muni ávaxta þá upphæð rækilega við söluna á Ganamanninum nú.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×