Enski boltinn

Milner vill fara frá Newcastle

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
James Milner, leikmaður Newcastle.
James Milner, leikmaður Newcastle. Nordic Photos / Getty Images

James Milner hefur formlega farið fram á að verða seldur frá Newcastle en hann hefur helst verið orðaður við Aston Villa.

Milner lék með Newcastle í gær er liðið vann 3-2 sigur á Coventry og þótti með betri mönnum vallarins. Martin O'Neill, stjóri Aston Villa, var á leiknum.

Newcastle hafnaði boði upp á átta milljónir punda frá Aston Villa í Milner og forráðamenn félagsins vilja ekki sleppa honum fyrir minna en tíu milljónir.

„Það eru okkur mikil vonbrigði að James vilji leita á önnur mið. Hann er mikilvægur hlekkur í okkar liði og aðeins eitt ár síðan hann skrifaði undir langtímasamning við félagið," sagði í yfirlýsingu frá félaginu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×