Enski boltinn

Rush: Keane mun gera Torres betri

NordcPhotos/GettyImages

Goðsögnin Ian Rush sem lék með Liverpool á sínum tíma segir að koma Robbie Keane til félagsins eigi eftir að gera Fernando Torres enn betri.

Torres skoraði 33 mörk fyrir Liverpool á sinni fyrstu leiktíð með liðinu, en Rush telur að með tilkomu Keane geti þeir myndað sóknarlínu ekki ósvipaða og Liverpool hafði þegar hann sjálfur lék með Kenny Dalglish.

"Keane er maður sem skapar mikið rétt eins og Kenny Dalglish gerði. Hann skorar mörk, en hann skapar líka mikið fyrir félaga sína. Mér fannst frábært að spila með Kenni því ég vissi alltaf að hann myndi finna mig þegar ég var í færum," sagði Rush, sem skoraði sjálfur 346 á ferlinum með þeim rauðu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×