Enski boltinn

Barton fær annað tækifæri með Newcastle

NordcPhotos/GettyImages

Stjórn Newcastle hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem staðfest er að miðjumaðurinn Joey Barton muni fá annað tækifæri með liðinu á komandi tímabili. Hann losnaði úr fangelsi í gær vegna líkamsárásar.

Nokkrar vangaveltur hafa verið í gangi í breskum miðlum undanfarið hvort Barton yrði jafnvel leystur undan samningi hjá Newcastle, en í dag var staðfest á heimasíðu félagsins að hann fengi annað tækifæri. Hann sat fund með stjórn félagsins í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×