Enski boltinn

Ferill Robbie Keane

NordcPhotos/GettyImages

Írski framherjinn Robbie Keane hefur komið víða við á ferli sínum sem knattspyrnumaður, en hann sló ungur í gegn með liði Wolves og varð fljótt mjög eftirsóttur leikmaður.

Liverpool keypti Keane frá Tottenham í gær fyrir upphæð sem gæti numið um 20 milljónum punda þegar upp verður staðið og verður honum ætlað að leika við hlið hins magnaða Fernando Torres í framlínunni.

Hér fyrir neðan er stiklað á stóru yfir feril kappans:

1980: Fæddur í Dublin þann 8. júlí og skírður Robert David Keane.

1994: Gengur í raðir Wolves þrátt fyrir áhuga nokkurra stórliða. Þar lék hann undir stjórn Graham Taylor, fyrrum þjálfara enska landsliðsins.

1997: Skrifar undir sinn fyrsta samning sem atvinnumaður í kring um 17. afmælisdag sinn. Skoraði tvö mörk í sínum fyrsta leik með aðalliðinu í 2-0 sigri Wolves á Norwich á fyrsta degi keppnistímabilsins.

1998: Spilar sinn fyrsta landsleik fyrir Íra þegar hann kemur inn sem varamaður á móti Tékkum. Kjörinn maður leiksins í sínum öðrum landsleik fyrir Íra gegn Argentínu og sumarið eftir er hann lykilmaður í ungmennaliði Íra sem vinnur Evrópubikarinn á Kýpur.

1999: Lið eins og Middlesbrough og Aston Villa sýna honum mikinn áhuga í upphafi leiktíðar, en hann ákveður að vera áfram hjá Wolves. Aston Villa gerir 5,5 milljón punda tilboð í hann, en Wolves vill fá 6 milljónir. Sir Alex Ferguson lætur hafa eftir sér að hann myndi ekki greiða meira en 500,000 pund fyrir Keane. Gengur í raðir Coventry í ágúst og verður dýrasti táningurinn í ensku úrvalsdeildinni. Skorar tvö mörk í sínum fyrsta leik í úrvalsdeildinni í 2-0 sigri á Derby.

2000: Skorar 17. og síðasta mark sitt fyrir Coventry gegn Middlesbrough í apríl og í júlí gengur hann í raðir Inter Milan fyrir 13 milljónir punda og skrifar undir fimm ára samning. Missir síðar sæti sitt í liði Inter og er orðaður við Chelsea. Gengur til liðs við Leeds sem lánsmaður í desember með möguleika á varanlegum félagaskiptum.

2001: Skorar 9 mörk í fyrstu 14 leikjum sínum sem leikmaður Leeds. Skorar einnig grimmt fyrir írska landsliðið.

2002: Meiðsli og koma Robbie Fowler verða til þess að hann missir sæti sitt í liði Leeds. Leeds tók kauptilboði Sunderland í Keane í júlí, en hann neitaði að fara til félagsins. Gengur í raðir Tottenham í ágúst fyrir 7 milljónir punda.

2003: Skorar fyrstu þrennu sína fyrir Tottenham í 4-3 sigri á Everton á White Hart Lane.

2004: Tottenham gengur afleitlega í deildinni en Keane er markahæsti leikmaður liðsins með 16 mörk á leiktíðinni - þar á meðal þrennu gegn fyrrum félögum sínum í Wolves.

2005: Skoraði 17 mörk fyrir Tottenham þrátt fyrir að vera sjaldnast í byrjunarliðinu og jafnan á eftir mönnum eins og Jermain Defoe, Mido og Freddy Kanoute.

2006: Skrifar undir nýjan fjögurra ára samning við Tottenham og gerður að varafyrirliða. Skorar 16 mörk á leiktíðinni og er orðinn fjórði markahæsti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar.

2007: Snýr til baka eftir hnémeiðsli og kemur sér upp frábærri samvinnu við Búlgarann Dimitar Berbatov í framlínunni. Kjörinn leikmaður mánaðarins ásamt félaga sínum í apríl. Skorar 22 mörk á leiktíðinni í öllum keppnum - sem er besti árangur hans á ferlinum. Skrifar undir nýjan fimm ára samning við Tottenham.

2008: Gerður að fyrirliða írska landsliðsins eftir að Steve Staunton tekur við þjálfun liðsins. Skorar 100. mark sitt fyrir Tottenham í janúar og verður aðeins 15. leikmaðurinn í sögu félagsins til að afreka það. Vinnur fyrsta bikar sinn með Tottenham í febrúar þegar liðið vinnur Chelsea í úrslitaleik enska deildabikarsins. Spilaði sinn 250. leik fyrir Tottenham og var markahæsti leikmaður liðsins á leiktíðinni ásamt Berbatov með 23 mörk.

Gengur í raðir Liverpool þann 28. júlí fyrir 20,3 milljónir punda og skrifar undir fjögurra ára samning.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×