Enski boltinn

Tottenham enn á eftir Bentley

NordcPhotos/GettyImages

Stjórnarformaður Blackburn staðfesti við Sky í hádeginu að félagið væri komið aftur í samningaviðræður við Tottenham vegna vængmannsins David Bentley.

Blackburn hefur fram að þessu ekki kært sig um að selja landsliðsmanninn en John Williams stjórnarformaður félagsins hefur nýlega látið í það skína að hinn 23 ára gamli Bentley gæti farið frá félaginu fyrir rétt verð.

Bæði Aston Villa og Tottenham hafa fengið nei við formlegum tilboðum sínum í kappann fyrir nokkru, en nú er Tottenham aftur komið í viðræður við Blackburn og þá væntanlega með meiri fjármuni í farteskinu eftir söluna á Robbie Keane.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×