Enski boltinn

Gardner lánaður til Hull

Anthony Gardner er 26 ára og var lánaður til Everton á síðustu leiktíð
Anthony Gardner er 26 ára og var lánaður til Everton á síðustu leiktíð NordcPhotos/GettyImages

Varnarmaðurinn Anthony Gardner hjá Tottenham var í dag lánaður til nýliða Hull í ensku úrvalsdeildinni. Gardner spilaði aðeins sex leiki með úrvalsdeildarfélaginu á síðustu leiktíð og segist fagna tækifæri til að fá að spila.

"Mér finnst ég hafa mikið að sanna og það er svekkjandi að fá ekki að spila þar sem samkeppnin er gríðarleg um stöðu í byrjunarliðinu. Annars vona ég fyrst og fremst að ég nái að sleppa við meiðsli," sagði Gardner í samtali við Daily Mail í dag.

Klásúla í lánssamningnum segir til um að Hull geti keypt miðvörðinn á 2,5 milljónir pundaa í janúar ef hann stendur undir væntingum. 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×