Handbolti

Ólafur er Beckham handboltans

Elvar Geir Magnússon skrifar
David Beckham handboltans.
David Beckham handboltans.

Handboltasérfræðingurinn Bent Nyegaard sparar ekki stóru orðin þegar hann er spurður út í Ólaf Stefánsson og skipti hans yfir í Albertslund/Glostrup. Nyegaard talar um Ólaf sem David Beckham handboltans.

„Það má líkja þessu við það að David Beckham gangi til liðs við Herfölge. Svo stór er Ólafur í handboltaheiminum," sagði Nyegaard. Ólafur hefur verið einn fremsti handboltamaður heims og segir Nyegaard að treyjusala gæti stóraukist hjá Albetslund/Glostrup með komu hans.

„Ólafur hefur verið besti handboltamaður heims síðustu tíu ár," sagði Nyegaard sem hefur þó ekki gleymt Króatanum Ivano Balic. Hann segir að gildi leikmannana sé svipað sóknarlega en Ólafur hafi það framyfir Balic að vera frábær varnarmaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×