Enski boltinn

Ronaldo klár eftir fjórar vikur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Cristiano Ronaldo er hér fagnað af félögum sínum.
Cristiano Ronaldo er hér fagnað af félögum sínum. Nordic Photos / Getty Images
Cristiano Ronaldo segist ætla sér að spila með Manchester United gegn Bolton þann 27. september næstkomandi.

Ronaldo gekkst undir aðgerð á hægri ökkla í byrjun júlí og var þá búist við því að hann yrði jafnvel frá fyrstu þrjá mánuði keppnistímabilsins.

En endurhæfingin hefur gengið vonum framar og segir Ronaldo að honum líði virkilega vel.

„Ég vona að ég geti spilað aftur með United í lok september. Það er mitt markmið og ég tel það vera raunhæft."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×