Formúla 1

Hamilton á ráspól í Ungverjalandi

Hamilton er í miklu stuði um þessar mundir
Hamilton er í miklu stuði um þessar mundir AFP

Lewis Hamilton verður á ráspól þegar ræst verður í Ungverjalandskappakstrinum á morgun eftir að hann náði bestum tíma allra í tímatökum í dag.

Hamilton var öruggur í öllum sínum aðgerðum í dag og náði sínum 10. ráspól á ferlinum.

McLaren bílarnir voru í góðu standi í dag þar sem félagi Hamilton, Heikki Kovalainen, náði öðrum besta tímanum.

Felipe Massa hjá Ferrari verður þriðji á ráslínu á morgun en heimsmeistarinn Kimi Raikkönen náði sér ekki á strik og endaði með sjötta besta tímann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×