Enski boltinn

Nasri opnaði markareikninginn eftir þrjár mínútur

Elvar Geir Magnússon skrifar
Það tók Samir Nasri aðeins rúmar þrjár mínútur að skora sitt fyrsta mark í úrvalsdeildinni.
Það tók Samir Nasri aðeins rúmar þrjár mínútur að skora sitt fyrsta mark í úrvalsdeildinni.

Flautað var til leiks í ensku úrvalsdeildinni í hádeginu en þá hófst leikur Arsenal og West Bromwich. Það tók Arsenal aðeins rúmar þrjár mínútur að komast yfir í leiknum.

Samir Nasri sem keyptur var frá Marseille í sumar skoraði þá eftir góða sókn. Sannkölluð draumabyrjun hjá Nasri í búningi Arsenal. Leikurinn er í beinni á Stöð 2 Sport.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×