Enski boltinn

Barton laus úr grjótinu

NordcPhotos/GettyImages

Miðjumaðurinn Joey Barton hjá Newcastle losnaði úr fangelsi í dag eftir að hafa dúsað þar í 74 daga af sex mánaða dómi sínum sem hann fékk fyrir að ráðast á ungling í miðborg Liverpool í desember í fyrra.

Ljóst er að Barton verður ekki til í slaginn með Newcastle á næstunni enda hefur hann misst af stærstum hluta undirbúningstímabilsins.

Gert er ráð fyrir því að hinn 25 ára gamli vandræðagemsi fái þó eitt tækifæri til viðbótar til að rétta við líf sitt og knattspyrnuferil undir stjórn Kevin Keegan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×