Körfubolti

Unnur Tara á leið frá Haukum

Elvar Geir Magnússon skrifar
Mynd/Víkurfréttir
Mynd/Víkurfréttir

Unnur Tara Jónsdóttir mun að öllum líkindum ekki leika með Haukum á næstu leiktíð. Þetta kemur fram á vefsíðunni karfan.is. Unnur segir í samtali við síðuna að miklar breytingar þyrftu að eiga sér stað ef hún ætti að vera áfram í Hafnarfirði.

,,Ég er sátt við tíma minn hjá Haukum að frátalinni síðustu leiktíð. Ég hefði hugsanlega átt að fara fyrr frá félaginu en ég fann að það var kominn tími á breytingar," sagði Unnur Tara í viðtali við síðuna.

Sjá nánar á karfan.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×