Enski boltinn

Hargreaves ætlar að sýna sitt rétta andlit

Elvar Geir Magnússon skrifar
Hargreaves segist ekki hafa enn sýnt sitt besta í búningi United.
Hargreaves segist ekki hafa enn sýnt sitt besta í búningi United.

Owen Hargreaves er ákveðinn í að sýna stuðningsmönnum Manchester United sitt rétta andlit á þessu tímabili. Þessi enski landsliðsmaður segist ekki hafa gengið heill til skógar síðasta vetur en sé nú að komast í sitt besta form.

„Ég á mikið inni. Ég var að stríða við meiðsli á hné og lék ekki neinn leik á síðasta tímaibli alveg heill. Nú er ég að jafna mig á þessum meiðslum og er ákveðinn í að sýna mitt besta í vetur," sagði Hargreaves.

Michael Carrick fór meiddur af velli í leiknum gegn Newcastle síðustu helgi og hefði Hargreaves því fengið tækifæri á miðjunni ef hann væri orðinn heill. Leikur United gegn Portsmouth á mánudag kemur þó líklega of snemma fyrir Hargreaves.

„Það er stutt í að ég sný aftur en ég hef ekki sett neina dagsetningu á það. Það skiptir litlu máli hvort ég geti spilað gegn Portsmouth, mestu skiptir að ég verði heill út tímabilið," sagði Hargreaves.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×