Formúla 1

Massa áfram fljótastur á Spa

NordicPhotos/GettyImages

Felipe Massa náði bestum tíma allra eftir æfingar dagsins fyrir Spa kappaksturinn í Belgíu um helgina. Rigning setti nokkuð strik í reikninginn á síðari æfingum dagsins, en þar kom Fernando Alonso sterkur inn.

Massa ók hringinn á 1 mínútu og 47,284 sekúndum í dag og var með besta tíma allra, en Fernando Alonso á Renault náði öðrum besta tímanum - 1 mínútu og 48,454 sekúndum.

Lewis Hamilton náði þriðja besta tímanum á fyrri æfingunni og fjórða besta á þeirri síðari.

Hamilton hefur sex stiga forystu í keppni ökuþóra en Felipe Massa mun leitast við að minnka það forskot á Spa um helgina eftir góðan sigur í Valencia á Spáni fyrir hálfum mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×