Fótbolti

Zlatan vill til Spánar eða Englands

Elvar Geir Magnússon skrifar

Zlatan Ibrahimovic, sóknarmaður Inter, segist vilja spila á Spáni eða Englandi. Þessi skemmtilegi 27 ára leikmaður er nú í heimalandi sínu, Svíþjóð, að jafna sig af meiðslum í hné.

Leikmaðurinn hefur verið orðaður við Real Madrid og Chelsea. Zlatan segist ánægður á Ítalíu en þó vilji hann reyna fyrir sér í annarri deildarkeppni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×