Fótbolti

Keisarinn skýtur á leikmenn Bayern

NordicPhotos/GettyImages

Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen, segist ánægður með störf Jurgen Klinsmann sem tók við þjálfun liðsins í sumar. Hann getur þó ekki stillt sig um að skjóta aðeins á leikmenn liðsins.

"Ég ber fullt traust til Klinsmann og starfsaðferðir hans hafa stjórninni vel í geð. Hann nýtur 100% stuðnings okkar og ég vona bara að leikmennirnir taki sér hann til fyrirmyndar," sagði Beckenbauer í samtali við þýska fjölmiðla.

"Hver einasti leikmaður liðsins þarf að bæta sig. Það er til dæmis ótækt að leikmenn á borð við Philipp Lahm eða Bastian Schweinsteiger skuli ekki geta gefið almennilega fyrirgjöf með vinstri fæti eftir allan þennan tíma," sagði "Keisarinn"






Fleiri fréttir

Sjá meira


×