Íslenski boltinn

Davíð Þór bestur í lokaumferðunum

Davíð Þór Viðarsson hjá FH var í dag kjörinn besti leikmaður lokaumferðanna í Landsbankadeild karla í knattspyrnu.

FH-ingar eiga fjóra fulltrúa í úrvalsliði umferða 15-22 í Landsbankadeildinni og þá var þjálfari liðsins Heimir Guðjónsson kjörinn besti þjálfarinn í lokaumferðunum.

Framarar eiga fjóra fulltrúa í úrvalsliði umferðanna líkt og Íslandsmeistararnir, en stuðningsmenn Keflavíkur fengu viðurkenningu fyrir að vera bestu stuðningsmennirnir.

Jóhannes Valgeirsson var kjörinn besti dómarinn í umferðunum.

Úrvalslið umferða 15-22 í Landsbankadeildinni:

Markvörður: Gunnleifur Gunnleifsson, HK

Varnarmenn: Auðun Helgason og Reynir Leósson, Fram og Tommy Nielsen, FH.

Miðjumenn: Davíð Þór Viðarsson og Tryggvi Guðmundsson FH, Hólmar Rúnarsson Keflavík, Paul McShane og Halldór Jónsson Fram.

Framherjar: Atli Viðar Björnsson FH og Guðmundur Steinarsson Keflavík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×