Menning

Woyzek sýndur í New York

Úr sýningunni sem flutt verður í þrígang í New York í vikunni. Ólafur Egill og Árni Pétur gera tilraunir á Ingvari Sigurðssyni.  Mynd: Leikfélag Reykjavíkur
Úr sýningunni sem flutt verður í þrígang í New York í vikunni. Ólafur Egill og Árni Pétur gera tilraunir á Ingvari Sigurðssyni. Mynd: Leikfélag Reykjavíkur
Vesturport sýnir sviðsetningu Gísla Arnar Garðarssonar á Woyzek í New York í vikunni. Nær fimmtíu manna flokkur hélt til New York á sunnudag og eru þrjár sýningar á verkinu á vegum BAM-hátíðarinnar. Gísli Örn segir hrakfarir í fjármálalífi þjóðarinnar hafa lítil áhrif á starfsemi Vesturports, fram undan séu sýningarferðir á hátíðir víða um lönd, bæði á Hamskiptunum og Woyzek. Þá komi til álita að æfa Rómeó og Júlíu upp og fara með stykkið á leikför. Boð leiklistarhátíða skoði flokkurinn gaumgæfilega og þekkist einungis þau sem tryggja fulla fjárhagslega aðkomu að sýningum Vesturports erlendis, enda hafi flokkurinn notið takmarkaðs stuðnings frá einkaaðilum til sýningarferðalaga, fái jafnvel ekki styrki úr Thalíu, ferðasjóði Reykjavíkur og Icelandair.

BAM-hátíðin hefur um langt árabil verið ein helsta blandaða listahátíð New York um árabil og er mikill heiður fyrir Vesturport að fá þar aðgang. Hún var lengi vel nátengd framvörðum í listalífi borgarinnar og leggur ríka áherslu á blöndu listgreina í nýsköpunarverkefnum. Sýning Vesturports á æskuverki Georg Buchner var unnin í samstarfi Leikfélags Reykjavíkur, Bite-hátíðarinnar í Barbican, Old Vic-leikhússins í London og Vesturports. Hún var frumsýnd hér á landi í Borgarleikhúsinu 2005 og var það í fyrsta sinn sem Nick Cave gekk til samstarfs við Vesturport. Nú mun vera í bígerð sviðsetning á öðru sígildu verki þýskra bókmennta í samstarfi Nick Cave við Vestur­port á Faust eftir Goethe.

pbb@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.