Formúla 1

Kristján keppir í Formúlu 3 í Bretlandi

Kristján Einar Kristjánsson í keppnisbúningi Carlin.
Kristján Einar Kristjánsson í keppnisbúningi Carlin.
Kristján Einar Kristjánsson hefur skrifað undir samning við Carlin Motorsport í Bretlandi og keppir á vegum liðsins í breska meistaramótinu í Formúlu 3. Kristján er styrktur af Salt Investments, sem er fyrirtæki í eigu Róbert Wessmann. Kristján er við æfingar á Pembrey brautinni í Englandi.

Kristján mun keppa í öllum Formúlu 3 mótum ársins, en keppt er í alþjóðlegum flokki og landsflokki þar sem bílarnir eru örlítið kraftminni.

Viktor Þór Jensen keppti í sama flokki í fyrra. Fjölskylda Kristjáns vildi að hann öðlaðist reynslu á aflminni bíl fyrsta árið.

Kristján Einar Kristjánsson segir að hann hafi fengið frábæran stuðning frá Carlin Motorsport og það sé spennandi verkefni að takast á við Formúlu 3. Sjónvarpsstöðin sýn mun sýna frá Formúlu 3 mótunum í kringum Formúlu 1 útsendingar ársins.

„Ég hef fengið frábæran stuðning frá Carlin og er kominn í gott samband við tæknimennina. Formúlu 3 í Bretlandi er mikils metinn mótaröð um allan heim og Salt Investment fyrirtækið hefur fært mér þetta tækifæri sem bakhjarl. Ég stefni á að keppa um titilinn í landsflokki," sagði Kristján í dag.

Sjá nánar á kappakstur.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×