Formúla 1

Hamilton ánægður með nýja útfærslu Formúlu 1

Bretinn Lewis Hamilton er ánægður gang mála hjá sér fyrir kappaksturinn í Ástralíu á morgun. Hann er fremstur á ráslinu og mjög sáttur við nýjar reglur um útbúnað bílanna. Hamilton keppir í fyrsta Formúlu 1 móti ársins í Ástralíu í nótt.

,,Tímatakan var taugatrekkjandi og ég náði aldrei virkilega góðum hring, þannig að ég veit að ég get ekið hraðar um brautina. Ég er ánægður með að lokaumferðin er aðeins 10 mínútur í tímatökunni og að engin spólvörn í bílunum", sagði Hamilton í dag.

,,Það er talsvert öðruvísi að aka án spólvarnar, en það laðar það besta fram í ökumönnum. Menn verða að taka á öllu sem þeir eiga til að ná árangri."

Bein útsending verður frá fyrsta móti ársins á Stöð 2 Sport í nótt kl. 04.00, en síðan verður samantekt frá mótinu kl. 22.00 á sunnudagskvöld. Í upphitun fyrir mótið í nótt verður rætt við Íslendinga á mótsstað og farið yfir gang mála um helgina með gestum í nýju myndveri.

Ítarlegar upplýsingar um tölfræði úr tímatökum og brautarlýsingu frá Melbourne er að finna á www.kappakstur.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×