Erlent

Lystugir veislugestir

Óli Tynes skrifar
Það er búið að segja gjörið þið svo vel.
Það er búið að segja gjörið þið svo vel.

Fílar hafa um aldir verið þarfasti þjónninn í Thailandi. Það er því haldið upp á dag fílsins og ýmislegt gert til þess að heiðra þessar stóru en gæfu skepnur.

Það voru fílaskrúðgöngur og fílakeppnir allskonar. Og svo var þeim auðvitað gefið gott að borða.

Fílar eru lystugir vel og geta borðað reiðinnar ósköp af ávöxtum grænmeti, grasi og öðrum jarðarinnar gæðum. Þeir tóku því hraustlega til matar síns þegar þeim var boðið upp á marga af sínum uppáhalds réttum.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×