Formúla 1

Mosley ætlar ekki að segja af sér

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Max Mosley, formaður FIA.
Max Mosley, formaður FIA. Nordic Photos / Getty Images

Max Mosley, formaður Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA), hefur beðist afsökunar á framferði sínu en ætlar ekki að segja af sér sem formaður sambandsins.

Mosley gaf frá sér yfirlýsingu þar sem hann baðst afsökunar ef hann særði sambandið eða meðlimi þess með framferði sínu.

News of the World greindi frá því um helgina að Mosley hefði tekið þátt í hópkynlífi með fimm vændiskonum þar sem líkt var eftir hegðun nasista.

Blaðið var með ljósmyndir og myndband undir höndum og því sönnunargögnin afar sannfærandi. Engu að síður ætlar Mosley að lögsækja þá sem lögðust í leynilega rannsókn í þeim tilgangi að koma höggi á hann.

Mosley var ráðið frá því að ferðast til Barein um helgina þar sem þriðja Formúlu 1 mót ársins fer fram.

Enn fremur sagði Mosley í bréfi sínu að blaðið sem birti greinina hafi gefið í skyn að um umrætt atvik hafi tengst nasisma en hann sagði það alrangt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×