Enski boltinn

City vann West Ham

Elvar Geir Magnússon skrifar

Manchester City lagði West Ham 3-0 í ensku úrvalsdeildinni í dag en öll mörkin komu í seinni hálfleik. Seint í fyrri hálfleik missti West Ham mann af velli þegar Mark Noble fékk að líta sitt annað gula spjald.

Micah Richards var fluttur af velli með súrefnisgrímu á sjúkrabörum í seinni hálfleiknum eftir að hafa fengið höfuðhögg. Hann lenti í samstuði við Tal Ben Haim.

Daniel Sturridge kom City yfir á 65. mínútu áður en að Elano bætti við tveimur mörkum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×