Enski boltinn

Barwick að hætta hjá FA

Elvar Geir Magnússon skrifar
Barwick og Fabio Capello.
Barwick og Fabio Capello.

Brian Barwick mun láta af störfum sem framkvæmdastjóri enska knattspyrnusambandsins, FA, í lok ársins. Þessi ákvörðun var tekin eftir langar viðræður hans við stjórnarformanninn Lord Triesman um hlutverk sitt í sambandinu.

Samband Triesman og Barwick hefur verið erfitt. Barwick segist vonast til að vera minnst fyrir að hafa tryggt byggingu hins nýja Wembley.

„Landslagið er mikið breytt síðan ég tók við og ég er mjög stoltur af því. Leikvangurinn sem ég var á í gærkvöldi er líklega einn sá besti í heimi," sagði Barwick sem starfaði meðal annars sem íþróttafréttamaður á BBC áður en hann tók við starfi hjá enska knattspyrnusambandinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×