Menning

Axlarbrot tafði frumsýningu

Tónlistarmenn peðsins við æfingar Leikstjóranum varð það á að nefna skoska leikritið sem leiddi til axlarbrots og frestun frumsýningar.fréttablaðið/anton
Tónlistarmenn peðsins við æfingar Leikstjóranum varð það á að nefna skoska leikritið sem leiddi til axlarbrots og frestun frumsýningar.fréttablaðið/anton

„Já, við erum hérna nokkrir ógæfumenn á Grand Rokki að setja upp jólasýningu," segir Böggi, eða Björgúlfur Egilsson, tónlistarmaður með meiru.

Hið einstæða leikfélag Peðið, sem á sér varnarþing á menningarbúllunni Grand Rokki, hefur að undanförnu verið að æfa sérstaka jólasýningu í leikstjórn Björns Guðlaugssonar. Stendur sýningin saman af tveimur leikþáttum: Litla stúlkan með eldspýturnar sem byggist á samnefndu ævintýri H.C. Andersen.

„Já, í leikgerð Magnúsar gamla Péturssonar píanista. Og síðan er hitt Aðfangadagsmorgunn eftir Gunnar Gunnarsson sem kallar sig Gunnso," segir Böggi. Sjálfur annast hann tónlistarflutning ásamt þeim Jóakim Karlssyni og Einari Maack. „Já, eða Jóakim von Gustavsberg eins og hann er líka kallaður. Annars erum við 19 í allt og verður frumsýnt á sunnudaginn klukkan sex. Sýnt verður svo alla sunnudaga á aðventunni. Spurt er hvort það sé ekki misráðið að hafa sýningar á sunnudegi að teknu tilliti til þess sem Böggi segir að í leikhópnum séu ógæfumenn sem oft eru nú krumpaðir á hvíldardeginum. „Það er góð spurning. Ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að svara þessu," segir Böggi.

Hann lýsir því að til hafi staðið að frumsýna fyrir viku en þá vildi ekki betur til en svo að leikstjóranum varð það á að nefna skoska leikritið. „Það var eins og við manninn mælt. Ein aðalleikkonan, Auður Birgisdóttir, datt í kjölfarið og axlarbrotnaði. Við urðum að fresta þessu um viku en erum fyrir vikið betur æfð. Auður er klár í slaginn."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.