Enski boltinn

Ljóst að Chelsea fær ekki Robinho

Elvar Geir Magnússon skrifar
Robinho verður áfram hjá Real Madrid.
Robinho verður áfram hjá Real Madrid.

Umboðsmaður brasilíska sóknarmannsins Robinho segir ljóst að leikmaðurinn fari ekki til Chelsea þetta árið. Chelsea hefur verið í viðræðum við Real Madrid um leikmanninn en þær hafa ekki þokast í rétta átt.

Real Madrid ætlar ekki að selja Robinho sem á tvö ár eftir af samningi sínum. Wagner Ribeiro er umboðsmaður hans og segir að forráðamenn spænska liðsins hafi ekki einu sinni áhuga á að hlusta á tilboð Chelsea.

Robinho er talinn vera ósáttur með hugmyndir forráðamanna Real Madrid um að bjóða sig til Manchester United í tilraunum Madridinga til að krækja í Cristiano Ronaldo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×