Enski boltinn

Benitez: Við verðum að selja leikmenn

NordcPhotos/GettyImages

Rafa Benitez, stjóri Liverpool, ítrekar að félagið hafi áhuga á að kaupa miðjumanninn Gareth Barry frá Aston Villa, en segir að til að svo megi vera - verði Liverpool að selja leikmenn til að fjármagna kaupin.

Benitez hefur þegar losað sig við nokkra leikmenn í sumar og þegar eru þeir John Arne Riise, Peter Crouch, Danny Guthrie og Scott Carson farnir frá félaginu. Liverpool hefur á móti fest kaup á Robbie Keane fyrir um 20 milljónir punda.

"Við vissum að við gætum ekki eytt peningum nema selja leikmenn og sú var raunin með Robbie Keane. Við erum enn að reyna að kaupa leikmennina sem okkur vantar og ef við verðum að selja menn til að fjármagna þau áform - verður bara að hafa það," sagði Benitez og bætti því við að félagið myndi halda áfram að reyna að krækja í Barry alveg þangað til félagaskiptaglugginn lokast.

Þetta gæti þýtt að leikmenn á borð við Jermaine Pennant, Andrei Voronin og Steve Finnan yrðu hugsanlega látnir fara frá félaginu - og þá er framtíð miðjumannsins Xabi Alonso enn óráðin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×