Enski boltinn

Cole bjargaði jafnteflinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Englendingar fagna marki Joe Cole.
Englendingar fagna marki Joe Cole. Nordic Photos / Getty Images
Joe Cole var hetja Englendinga er hann skoraði jöfnunarmark sinna manna gegn Tékklandi í vináttulandsleik í Englandi í kvöld.

Þetta var síðasti leikur Englendinga fyrir undankeppni HM 2010 og þóttu lærisveinar Fabio Capello ekki standa undir væntinum.

Milan Baros kom Tékkum yfir eftir að skot hans breytti um stefnu á Ashley Cole en Wes Brown jafnaði metin með góðum skalla.

Tékkar voru þó mun betri í leiknum og Marek Jankulovski með marki beint úr aukaspyrnu og var allt útlit fyrir sigur Tékkanna.

En þá kom Cole til sögunnar sem jafnaði með marki sem kom eftir mikið klafs í vítateignum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×