Fótbolti

120,000 manns kvöddu Kahn

Oliver Kahn er að hætta
Oliver Kahn er að hætta NordicPhotos/GettyImages

Markvörðurinn Oliver Kahn spilaði í kvöld sinn síðasta leik á ferlinum með Bayern Munchen þegar lið hans lagði lið Mohun Bagan 3-0 í æfingaleik í Kalkútta á Indlandi fyrir framan 120,000 manns.

Kahn var hylltur með gjöfum og kveðjum fyrir leikinn, en honum var skipt af velli á 55. mínútu. Þetta var jafnframt kveðjuleikur Ottmar Hitzfeld þjálfara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×