Samningar gera lítið úr menntun kennara 29. apríl 2008 18:17
Formaður efnahags- og skattanefndar segir nýgerða kjarasamninga grunnskólakennara gera lítið úr kennaramenntun. Grunnskólakennarar skrifuðu í gær undir kjarasamninga við sveitarfélögin þar sem kveðið er á um allt að 23 prósenta launahækkun. Þar af hækka grunnlaun kennara um 25 þúsund krónur á mánuði frá og með 1. júní næstkomandi. Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir hækkanir kennara almennt umfram það sem gengur og gerist á markaði og býst hann við að aðrar starfstéttir komi til með að taka mið af þessum samningum. Kostnaður sveitarfélaganna við samninginn nemur um 1,2 milljörðum króna á þessu ári og segir Pétur að stærri sveitarfélög séu eflaust í stakk búin til að mæta þessum kostnaði, en smærri sveitarfélög gætu hins vegar lent í vandræðum. Hann undrast hins vegar að ekki er gert meira úr virði kennaramenntunar í samningunum. Segir hann muninn milli menntaðra og ómenntaðra kennara of lítinn, þannig að í raun borgi sig ekki fyrir kennara að mennta sig. Fyrst sveitarfélögin greiði svo háar upphæðir í launakostnað til kennara, fái þeir mun meira fyrir peninginn séu kennarar betur menntaðir. Pétur segir launahækkunina enn meiri þegar litið er til þess hvaða áhrif þær hafa á lífeyrisgreiðslur sem koma til með að hækka til muna. Sá kostnaður sé stórlega vanmetinn.
Mest lesið Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Full ástæða til að vara foreldra við Innlent Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Innlent Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Innlent Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Innlent Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Innlent Útskýrir ummælin um barnlausar kattarkonur Erlent Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Innlent Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Innlent Fleiri fréttir Jökulhlaup hafið úr Mýrdalsjökli og hringveginum lokað Jökulhlaup virðist hafið úr Mýrdalsjökli Fullkomið gagnsæi mikilvægt, greiði fyrir greiða ekki við hæfi Bílakaup verðandi forseta og Druslugangan Lögreglan búin að finna manninn sem beraði sig Skipuleggjendur Druslugöngunnar þurftu fljótlega að loka fyrir innsendingar Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Merki Coolbet fjarlægt eftir símtal fréttamanns Bálhýsi á skógræktarsvæði á Borg í Grímsnesi Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Með veiðistangir en neituðu því að hafa verið að veiða Full ástæða til að vara foreldra við Málið óheppilegt og mjög klaufalegt Fíkniefni á samfélagsmiðlum og bílakaup verðandi forseta Ekki verið ætlun þeirra að gera bílakaupin opinber Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Kæra Byko vegna límmiða úr sögunni Ármúlinn verði vel nothæfur leikskóli eftir tvær vikur Hnífamaðurinn í Lundi áfram bak við lás og slá „Hann meiddi mig ekki mikið“ Umboðsmaður barna krefst svara um nýtt námsmat Sala á fíkniefnum fari fram fyrir opnum tjöldum Ferðamennirnir lausir úr haldi eftir líkamsárás Sala fíkniefna fyrir opnum tjöldum og stemmning á Húsavík Ný líkön sýna umfang hraunsins Allt í háaloft þegar faðirinn sneri til baka úr veikindaleyfi Óbreyttir bændur í Mýrdalnum hafi ekki efni á malbiki Ragnar Þór kennir Pawel eitt og annað í kennslufræðum Segir málið hið sérkennilegasta og krefst svara Boðar laugardagsbongó Sjá meira