Innlent

Á­ætlun Icelandair raskast vegna veðurs

Árni Sæberg skrifar
Viðskiptavinir Icelandair eru beðnir um að fylgjast vel með.
Viðskiptavinir Icelandair eru beðnir um að fylgjast vel með. Vísir/Vilhelm

Hvassviðri sem gengur yfir landið mun hafa áhrif á flugáætlun Icelandair seinni partinn á morgun, 31. janúar. Flug til Evrópu í fyrramálið er á áætlun en raskanir eru á flugi til Íslands frá Evrópu eftir hádegið á morgun og einnig flugi sem er á áætlun til Norður-Ameríku og Evrópu síðdegis.

Í fréttatilkynningu þess efnis frá Icelandair segir að af þessum völdum þurfi einnig að aflýsa flestum ferðum bæði frá Norður-Ameríku og til Evrópu snemma á laugardagsmorgun, 1. febrúar. Innanlandsflug sé enn sem komið er á áætlun en mögulegt sé að komi til raskana á því.

Í heild verður 30 ferðum til landsins aflýst og 30 frá landinu. Icelandair fylgist vel með veðurspám næstu daga og verður félagið í sambandi við farþega ef breytingar verða á flugi.

Farþegar sem áttu bókað með flugi sem nú hefur verið aflýst verði endurbókaðir og muni fá senda nýja ferðaáætlun. Vegna umfangs röskunarinnar megi búast við að endurbókunarferlið taki lengri tíma en venjulega. 

„Farþegum er þökkuð þolinmæðin og bent á að fylgjast vel með þeim skilaboðum sem félagið sendir auk þess sem hægt er að fylgjast með á vef félagsins undir bókunin mín og í Icelandair appinu. Ekki er þörf á að hafa samband við Icelandair nema ný ferðaáætlun falli ekki að ferðalaginu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×