Íslenski boltinn

Gravesen í tveggja leikja bann

Peter Gravesen
Peter Gravesen Mynd/Vilhelm

Sex leikmenn úr Landsbankadeild karla voru úrskurðaðir í leikbann af Aga- og Úrskurðarnefnd KSÍ eftir fund í gær. Daninn Peter Gravesen hjá Fylki fékk tveggja leikja bann eftir að hafa fengið 8 áminningar í sumar.

Þá voru þeir Kristján Hauksson og Tómas Leifsson úr Fjölni, Guðjón Baldvinsson og Guðmundur Reynir Gunnarsson úr KR og Ólafur Stígsson úr Fylki allir dæmdir í eins leiks bann - Guðmundur Reynir og Ólafur vegna brottvísana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×