Enski boltinn

Drogba sáttur við að vera áfram hjá Chelsea

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Didier Drogba, leikmaður Chelsea.
Didier Drogba, leikmaður Chelsea. Nordic Photos / Getty Images

Didier Drogba sagði í viðtali við France Football í dag að hann væri sáttur við að vera áfram í herbúðum Chelsea.

Drogba hefur verið þrálátlega verið orðaður við önnur félög en hann hefur margoft sagt að hann vilji fara frá Chelsea en svo jafn óðum tekið það til baka.

„Eins og ég hef alltaf sagt þá er ég á mála hjá Chelsea. Það er frábært lið með frábæra leikmenn og frábæran þjálfara, sem og metnaðarfullan forseta."

„Ég vil ekki tala um þetta meira. Ég er hjá Chelsea. Allt gengur vel þar."

„Ég á enn tvö ár eftir af samningi mínum. Ef mínir vinnuveitendur vilja ekki að ég fari þá verð ég áfram leikmaður Chelsea. Í dag gerðu þeir mér ljóst að þeir vilja sjá mig spila áfram í búningi Chelsea."

Fram kom fyrr í vikunni að nýr fjögurra ára samningur fyrir Drogba væri í burðarliðnum hjá Chelsea.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×