Enski boltinn

Owen aftur með sigurmark

Elvar Geir Magnússon skrifar
Aron Einar í baráttunni.
Aron Einar í baráttunni.

Michael Owen skoraði sigurmark Newcastle sem vann 3-2 sigur á Coventry í 2. umferð enska deildabikarsins. Markið kom í framlengingu en staðan eftir venjulegan leiktíma var 2-2.

Coventry tryggði sér framlengingu með marki undir lok venjulegs leiktíma. Aron Einar Gunnarsson tók þá gríðarlega langt innkast og eftir það var boltinn skallaður inn. Aron lék allan leikinn fyrir Coventry.

Þetta var annað sigurmarkið í röð hjá Owen en hann skoraði gegn Bolton um síðustu helgi.

Hartlepool vann 3-1 sigur á West Bromwich Albion eftir framlengdan leik, Swansea vann úrvalsdeildarlið Hull 2-1 og Watford vann Darlington 2-1.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×