Enski boltinn

Fulham vann Arsenal

Leikmenn Fulham fagna hér sigurmarki Brede Hangeland.
Leikmenn Fulham fagna hér sigurmarki Brede Hangeland.

Fulham bar sigurorð af Arsenal, 1-0, í ensku úrvalsdeildinni í dag. Það var norski varnarmaðurinn Brede Hangeland sem skoraði sigurmarkið með skoti af stuttu færi á 21. mínútu leiksins.

Bæði lið hafa nú unnið einn leik og tapað einum það sem af er tímabilinu. Arsenal sótti meira í leiknum en náði ekki að skapa sér nein færi að ráði. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×