Viðskipti innlent

Lítil breyting á úrvalsvísitölunni

Fréttablaðið/Valli

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,20 prósent í dag og stendur nú 4220 stigum.

Exista hækkaði um 4,81 prósent og hafa bréf félagsins hækkað um 14 prósent frá byrjun síðustu viku. Eik banki hækkaði um 4,59 prósent og Bakkavör um 3,7 prósent.

Bréf Atlantic Petroleum lækkuðu um 2,7 prósent, Century Aluminium um 2,46 prósent og Alfesca um 0,73 prósent.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×