Innlent

Grétar Már Sigurðsson látinn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Grétar Már Sigurðsson.
Grétar Már Sigurðsson.
Grétar Már Sigurðsson, sendiherra og fyrrverandi ráðuneytisstjóri, andaðist í morgun, 50 ára að aldri, eftir baráttu við illvígt mein.

Grétar Már átti langan og farsælan feril í utanríkisþjónustunni og tengdum störfum frá árinu 1987, segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Hann var í farabroddi íslenkra embættismanna í samskiptum við Evrópusambandið og gegndi lykilstörfum við rekstur samningsins um Evrópska efnahagssvæðið frá upphafi auk þess að gegna starfi aðstoðarframkvæmdarstjóra EFTA um tíma.

Grétar Már var skipaður sendiherra í utanríkisþjónustu Íslands í september 2001 og ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu í júlí 2006. Síðasta starf hans í utanríkisráðuneytinu var staða sérstaks Evrópuráðgjafa utanríkisráðherra.

Grétar Már Sigurðsson lætur eftir sig eiginkonu, Dóru Guðrúnu Þorvarðardóttur, og þrjár dætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×