Jenson Button hefur ekki unnið fjögur síðustu Formúlu 1 mót eftir ævintýralega byrjun á árinu og liðsfélagi hans Rubens Barrichello vann síðustu keppni og Button varð sjöundi. Button segir daginn í dag mikilvægan fyrir lið sitt.
Formúlu 1 liðin keppa á Spa brautinni um helgina og tvær æfingar verða í dag. Button hefur verið í vandræðum að ná réttu hitastigi í dekkin þegar kalt er í veðri og veður eru válynd á Spa og hann gæti lent í vanda um helgina af þeim sökum.
"Ég vona að við höfum leyst vandræðin í kringum dekkjamálin, en dagurinn í dag verður mikilvægur og líka fyrir helstu keppinauta okkar um titilinn hjá Red Bull. Það verður líka mun meiri samkeppni á milli liða þessa mótshelgina og ekki bara tvö lið að berjast", sagði Button. Hann er með 18 stiga forskot á Barrichello í stigamóti ökumanna, en næstur á eftir er Mark Webber, sem er 20 stigum á eftir. Enn eru 60 stig í pottinum.
"Ég verð að vera sókndjarfari í þeim mótum sem eftir eru, ég fékk bara 2 stig af 10 mögulegum í síðustu keppni og það gengur ekki upp. Ég lenti líka í því að Vettel keyrði yfir framvænginn hjá mér og gekk illa í tímatökum. Það átti sinn þátt í slappari árangri en ella. Ég þarf að vera áræðinn á Spa, án þess að gera eitthvað heimskulegt", sagði Button.
Sýnt verður frá æfingum keppnisliða í samantekt kl. 21:30 á Stöð Sport í kvöld, en hér má sjá brautarlýsingu og tölfræði frá Spa.
Button: Meiri samkeppni framundan
