Fótbolti

Baldur hættur hjá Bryne

Elvar Geir Magnússon skrifar

Baldur Sigurðsson er hættur hjá norska 1. deildarliðinu Bryne en frá þessu er greint á vefsíðunni Fótbolti.net. Baldri er frjálst að ræða við önnur félög en fjárhagsstaða Bryne er slæm.

Fyrr í vetur bárust fréttir af því að Valur og Keflavík vildu fá Baldur en samkvæmt heimildum Fótbolta.net er einnig áhugi frá KR og FH.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×