Lífið

Hellisbúinn frumsýndur

Leikstjórinn Rúnar Freyr Gíslason ásamt Hellisbúanum sjálfum, Jóhannesi Hauki, skömmu fyrir frumsýningu.fréttablaðið/vilhelm
Leikstjórinn Rúnar Freyr Gíslason ásamt Hellisbúanum sjálfum, Jóhannesi Hauki, skömmu fyrir frumsýningu.fréttablaðið/vilhelm

Einleikurinn Hellisbúinn var frumsýndur í Íslensku óperunni á fimmtudagskvöld. Margt var um manninn á sýningunni og skemmtu áhorfendur sér hið besta yfir gamanmálum Jóhannesar Hauks Jóhannessonar.

Jóhannes Haukur hefur tekið við af Bjarna Hauki Þórssyni sem Hellisbúinn og bíða margir með eftirvæntingu eftir því hvernig hann skilar hlutverkinu af sér. Einleikurinn fjallar um samskipti kynjanna frá öðru sjónarhorni en við eigum að venjast og er ætlað að kitla íslenskar hláturtaugar og sætta karla og konur. Leikstjóri er Rúnar Freyr Gíslason og Sigurjón Kjartansson sá um að þýða og staðfæra.

haukur og lára Haukur Olavsson og Lára Ómarsdóttir fréttakona voru á meðal gesta.
á frumsýningu Sjónvarpsþulan Matthildur Magnúsdóttir, leikarinn Hallgrímur Ólafsson og leikhússtjórinn Magnús Geir Þórðarson mættu á frumsýninguna.


vinkonur Vinkonurnar og leikkonurnar Selma Björnsdóttir og Unnur Ösp Stefánsdóttir létu sig ekki vanta.
ísleifur og bergsveinn Ísleifur Þórhallsson og Bergsveinn Jónsson stilltu sér upp fyrir ljósmyndara.
d





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.