Hildur Sigurðardóttir, fyrirliði KR, átti frábæran leik í Toyota-höllinni í Keflavík þegar KR-konur unnu fyrsta leik undanúrslitaeinvígis síns á móti Íslandsmeisturum Keflavíkur í Iceland Express deild kvenna. Hildur var með 20 stig, 8 fráköst og 6 stoðsendingar í leiknum og leiddi sitt lið til langþráðs sigur í Keflavík.
„Við ákváðum bara að halda áfram sama hvað kæmi upp á því að það er nóg eftir af þessari rimmu," sagði Hildur eftir leikinn en KR lenti missti Keflavíkurliðið nokkrum sinnum frá sér í leiknum. „Þetta er stór sigur fyrir okkur að brjóta þann ís að vinna í Keflavík. Við þurfum að vinna hérna til að komast áfram. Það var mikilvægt að taka fyrsta leikinn og setja þær upp við vegg," bætti Hildur við.
KR-konur unnu langþráðan sigur í fyrsta leik undanúrslitaeinvígis síns á móti Keflavík í gær. KR-liðið var nefnilega ekki búið að vinna í Keflavík síðan 31. janúar 2005 og hafði tapað þar tíu leikjum í röð.
Jóhannes Árnason, þjálfari KR getur líka ekki verið annað en himinlifandi með framlag fyrirliðans í síðustu leikjum.
„Hildur er til fyrirmyndar í öllu sem hún gerir. Hún hugsar um líkamann sinn og passar upp á það sem hún setur í hann. Það skilar sér síðan í þessum toppleikjum og skilur á milli hvort menn séu tilbúnir eða ekki," sagði Jóhannes Árnason, þjálfari KR um hana eftir leikinn.
Jóhannes gat ekki skipt Hildi útaf í leiknum þar sem varaleikstjórnandi liðsins, Heiðrún Kristmundsdóttir er meidd og hefur ekki getað verið með í síðustu leikjum.
„Ég hafði gríðarlegar áhyggjur af geta ekki skipt henni útaf í leiknum. Ég veit ekki hvort það sé harðfiskurinn eða Herbalife-ið en hún hélt þetta út," sagði Jóhannes með sínum skemmtilega húmor.
Hildur sjálf sagðist ekki hafa fundið fyrir þreytu í lokin enda var það ekki sjáanlegt nema þá í vítaskotunum sem voru ekki að detta hjá henni. „Ég veit alveg að ég get spilað 40 mínútur í leik en þetta er erfitt og þetta verður erfið rimma fyrir mann. Ég er í hörkuformi," sagði Hildur.
Næsti leikur einvígisins er annaðkvöld í DHL-Höllinni en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst í lokaúrslitin.