Fótbolti

Klinsmann er ánægður með að mæta Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jürgen Klinsmann, þjálfari Bayern Munchen er kátur.
Jürgen Klinsmann, þjálfari Bayern Munchen er kátur. Mynd/GettyImages

Það var almenn ánægja innan herbúða þýska liðsins Bayern Munchen um að mæta Barcelona í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„Þetta er frábær áskorun fyrir mitt lið að mæta einu besta liði í Evrópu," sagði Jürgen Klinsmann, þjálfari Bayern í viðtali á heimasíðu félagsins.

„Þetta verða sérstakir leikir. Barcelona verður mjög erfiður mótherji en það er allt hægt í fótbolta. Við verðum að trúa á okkur sjálfa og það er engin ástæða til að standa og dást af þeim," bætti Klinsmann við.

„Þetta eru frábærar fréttir fyrir félagið," Uli Hoeness framkvæmdastjóri Bayern. „Við höfum alltaf sagt að ef við mætum einum af risunum þá viljum við fá seinni leikinn heima. Það er draumadráttur fyrir okkur að fá seinni leikinn á móti Barcelona í Allianz Arena.

 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×