Fótbolti

Ferdinand: Kemur ekki til greina að missa af úrslitaleiknum

NordicPhotos/GettyImages

Rio Ferdinand, varnarmaður Manchester United, segir útilokað í sínum huga að missa af úrslitaleiknum í meistaradeildinni í næstu viku.

Alex Ferguson knattspyrnustjóri liðsins gaf það út í gær að Ferdinand ætti litla möguleika á að spila úrslitaleikinn ef hann yrði ekki nógu heill til að spila lokaleikinn í úrvalsdeildinni gegn Hull á sunnudaginn.

Ferdinand hefur ekki komið við sögu hjá United um nokkurt skeið vegna meiðsla sem hann hlaut í síðari leiknum við Arsenal í undanúrslitum meistaradeildarinnar.

"Ég hef ekki einu sinni hugsað um að missa af leiknum. Það kemur ekki til greina. Mér hefur gengið þokkalega á æfingum, en þetta er erfiðasta meiðslabarátta mín á ferlinum af því það er svo mikið í húfi. Ég hef verið svo upptekinn af meiðslunum að ég hef ekki gefið mér mikinn tíma til að hugsa um sjálfan úrslitaleikinn. Ég byrja á því þegar ég sest í flugvélina á leið til Rómar," sagði Ferdinand.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×