Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, er íþróttamaður ársins 2008. Þetta var tilkynnt á Grand Hótel í Reykjavík nú rétt í þessu. Ólafur fékk fullt hús í kjörinu en þetta er í þriðja sinn sem hann er íþróttamaður ársins.
Ólafur var fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins sem vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking. Hann var valinn í úrvalslið mótsins. Lék einnig lykilhlutverk með spænska stórliðinu Ciudad Real sem vann fimmfalt á tímabilinu þar á meðal Meistaradeildina þar sem Ólafur átti stórleik í úrslitaleiknum og varð markakóngur Meistaradeildarinnar.
Handboltamaðurinn Snorri Steinn Guðjónsson varð annar í kjörinu og knattspyrnukonan Margrét Lára Viðarsdóttir, sem var íþróttamaður ársins í fyrra, varð í þriðja sæti.
Það voru 24 félagsmenn í Samtökum íþróttafréttamanna sem höfðu kosningarétt og röðuðu tíu íþróttamönnum niður á lista. Sá sem settur er í fyrsta sæti fær 20 stig, sá sem kemur í öðru sæti 15, sá þriðji 10, sá sem lendir í fjórða sæti fær 7 stig og svo lækkar þetta um eitt stig við hvert sæti eftir það.
Þeir sem fengu atkvæði í kjörinu í ár:
Ólafur Stefánsson, handbolti, 480 stig
Snorri Steinn Guðjónsson, handbolti, 287
Margrét Lára Viðarsdóttir, fótbolti, 210
Guðjón Valur Sigurðsson, handbolti, 194
Eiður Smári Guðjohnsen, fótbolti, 124
Hermann Hreiðarsson, fótbolti, 97
Katrín Jónsdóttir, fótbolti, 61
Alexander Petersson, handbolti, 56
Þormóður Jónsson, júdó, 51
Jón Arnór Stefánsson, körfubolti, 39
Helena Sverrisdóttir, körfubolti, 33
Veigar Páll Gunnarsson, fótbolti, 26
Dóra María Lárusdóttir, fótbolti, 25
Bergur Ingi Pétursson, frjálsar íþróttir, 10
Grétar Rafn Steinsson, fótbolti, 10
Björgvin Páll Gústavsson, handbolti, 10
Hólmfríður Magnúsdóttir, fótbolti, 9
Viktor Kristmannsson, fimleikar, 7
Róbert Gunnarsson, handbolti, 6
Arnór Atlason, handbolti, 5
Ragna Ingólfsdóttir, badminton, 4
Örn Arnarson, sund, 4
Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsar íþróttir, 2
Ólöf María Jónsdóttir, golf, 1
Eyþór Þrastarson, sund fatlaðra, 1