Golf

Tiger vann í Ástralíu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Um 25 þúsund áhorfendur fengu nákvæmlega það sem þeir vildu frá Tiger Woods í nótt. Tiger spilaði gríðargott golf á lokahringnum og vann mótið í Melbourne með tveggja högga mun.

Tiger var jafn tveimur öðrum fyrir lokadaginn en hringur upp á 68 var of mikið fyrir heimamennina sem reyndu að veita honum keppni.

Þetta var fyrsta mót Tigers í Ástralíu í 11 ár og það þurfti litlar 3 milljónir punda til þess að draga hann til landsins.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×